Orri Freyr Þorkelsson var á sínum stað í liði Sporting Lissabon þegar það vann sinn 21. sigur í jafnmörgum leikjum í portúgölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Bræðurnir Francisco og Martim Costa fóru á kostum í 36:30 útisigri á Águas Santas/Milaneza.
Orri Freyr skoraði tvö mörk fyrir Sporting en langsamlega markahæstur var hægri skyttan Francisco Costa með 11 mörk. Vinstri skyttan Martim bætti við sjö mörkum.
Sporting er með 63 stig á toppi deildarinnar, átta stigum meira en Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar hans í Benfica. Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto eru í þriðja sæti með 51 stig en eiga tvo leiki til góða á Sporting og Benfica.
Benfica og Porto mætast í stórslag í Lissabon síðar í kvöld. Sá leikur hefst klukkan 20.30 og má vænta þess að bæði Stiven og Þorsteinn Leó verði í eldlínunni.



