- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elías Már söðlar um í Noregi

- Auglýsing -

Elías Már Halldórsson lætur af störfum sem þjálfari karlaliðs Ryger Stavanger í sumar og tekur þá við þjálfun varaliðs kvennaliðs Storhamar HE.

Ryger frá Stafangri leikur í norsku B-deildinni, er þar í botnsæti og virðist fátt geta komið í veg fyrir fall niður í C-deild. Varalið Storhamar frá Hamar leikur í B-deildinni en aðallið félagsins er eitt það sterkasta í úrvalsdeildinni kvenna megin og ríkjandi Noregsmeistari.


Elías Már tók við Ryger Stavanger síðastliðið sumar og skrifaði þá undir tveggja ára samning en nú er ljóst að hann söðlar um og flytur til Hamars í sumar.

Handkastið greinir frá því að samhliða því að þjálfa varalið Storhamars muni Elías Már taka við sem yfirþjálfari í WANG Toppidrett Hamar, sem er virtur afreksíþróttamenntaskóli.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -