Viggó Kristjánsson fór hamförum og skoraði 16 mörk úr 19 skotum í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden í þýsku 1. deildinni á sunnudaginn. Það er persónulegt met hjá Viggó, hann hafði aldrei fyrr skorað svo mörg mörk í einum leik á ferlinum.
Þrátt fyrir það var Viggó ekki alls kostar sáttur við sjálfan sig og sýtti þar vítaklúður. „Þetta er mjög góð tilfinning en satt að segja er ég pirraður yfir vítakastinu sem ég klúðraði,“ sagði Viggó í samtali við þýsku streymisveituna Dyn.
Tibor Ivanisevic í marki Minden varði vítakast Viggó í upphafi síðari hálfleiks en íslenski landsliðsmaðurinn bætti hins vegar við sex mörkum í hálfleiknum. Viggó náði sér ekki á strik í tveimur leikjum Erlangen á undan þegar hann skoraði alls þrjú mörk auk þess sem tíu skot, fimm í hvorum leik, fóru forgörðum.
„Þetta var ótrúlega mikilvægur leikur fyrir okkur. Ég vildi sýna betri frammistöðu en í síðustu leikjum. Ég býst við meiru af sjálfum mér og ég er einfaldlega ánægður með að mér hafi tekist að sýna það í dag,“ sagði Viggó einnig við Dyn.



