- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Verð ekki að spila með landsliðinu 37 ára gamall

- Auglýsing -

Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins, viðurkennir fúslega að hann sjái ekki fyrir sér að geta verið ennþá í landsliðinu þegar hann verður orðinn 37 ára gamall eins og Antje Döll, fyrirliði þýska kvennalandsliðsins.

„Ég held að ég geti nú þegar fullyrt það að ég verði ekki að spila með landsliðinu þegar ég er 37 ára gamall,“ sagði hinn 28 ára gamli Golla í samtali við danska miðilinn Hbold.dk.


Eina af ástæðunum fyrir því sagði hann vera þá að það að vera línumaður taki mjög á líkamlega vegna sífelldra átaka. Döll er til samanburðar vinstri hornamaður og er því sjaldnar í beinum líkamlegum átökum.

„Ég nýt þess að spila núna en ég finn líka hversu mikillar orku þetta krefst. Á einhverjum tímapunkti verð ég að íhuga hversu lengi ég get haldið þessu áfram,“ sagði Golla einnig.

Alfreð Gíslason er þjálfari þýska karlalandsliðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -