- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Enn heltist úr lest lánlausra Stjörnumanna

- Auglýsing -

Karlalið Stjörnunnar hefur tapað tíu leikjum í röð í Olísdeildnni og situr í 11. og næstneðsta sæti fyrir lokaumferð deildarinnar á fimmtudagskvöld. Afskaplega mikil meiðsli hafa herjað á lið Stjörnunnar og nú hefur Færeyingurinn Jóhannes Bjørgvin bæst á meiðslalistann.

Handkastið greinir frá því að Jóhannes, sem er vinstri hornamaður, hafi meiðst á kálfa á æfingu nýverið, hafi af þeim sökum misst af síðustu tveimur leikjum liðsins og komi ekkert frekar við sögu á tímabilinu.


Þeir Gauti Gunnarsson, Pétur Árni Hauksson og Egill Magnússon verða frá út tímabilið en nýverið sneri fyrirliðinn Tandri Már Konráðsson aftur á völlinn eftir að hafa slitið hásin í ágúst.

Ísak Logi Einarsson og Sveinn Andri Sveinsson sneru þá aftur á völlinn nýverið eftir meiðsli en Stjarnan er í erfiðri stöðu þegar ein umferð er óleikin.

Stjarnan fær Fram í heimsókn í Heklu höllina í lokaumferðinni á fimmtudagskvöld og getur fallið beint niður í Grill 66 deildina með óhagstæðum úrslitum í sínum leik og leik FH og botnliðs ÍR í Kaplakrika.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -