Marcos Fis, 18 ára hægri skytta BM Granollers og spænska A-landsliðsins, er eftirsóttur af nokkrum af stærstu félögum heims. Þrátt fyrir ungan aldur lék Fis með Spáni á EM 2026 í byrjun ársins og er algjör lykilmaður hjá Granollers.
Spænska dagblaðið Mundo Deportivo greinir frá því að FC Barcelona, París Saint-Germain, THW Kiel og SC Magdeburg séu öll mjög áhugasöm um að semja við Spánverjann unga.
Fis minnti allverulega á sig þegar hann skoraði níu mörk fyrir Granollers í tapi fyrir Barcelona, 42:31, í spænsku 1. deildinni á sunnudag.
Samningur Fis við Granollers rennur út sumarið 2027 og því ekki endilega neitt fararsnið á hægri skyttunni næstkomandi sumar, ekki síst þar sem hann er í stóru hlutverki hjá Granollers og getur þar haldið áfram að þróa sinn leik.
Ef fram heldur sem horfir mun þó ekki líða á löngu þar til Fis endar hjá stærra félagi.



