- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Svíinn sterki áfram hjá Íslendingaliðinu

- Auglýsing -

Sænski línumaðurinn Oscar Bergendahl hefur skrifað undir nýjan samning við Evrópumeistara SC Magdeburg í Þýskalandi. Nýi samningurinn gildir til loka tímabilsins 2027/28.

Bergendahl, sem er 31 árs og afskaplega sterkur varnarmaður, hefur leikið með Íslendingaliði Magdeburg frá því í febrúar árið 2023 og hefur tvívegis unnið Meistaradeild Evrópu og þýsku 1. deildina einu sinni.

Svíar mæta með sitt sterkasta lið til Íslands og eru sagðir í hefndarhug


Sænska landsliðið er væntanlegt hingað til lands síðar í mánuðinum til að spila tvo vináttulandsleiki við það íslenska og er Bergendahl í hópnum, en þar er hann lykilmaður.

Bergendahl mætir þó einungis einum liðsfélaga sínum í Magdeburg, Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, þar sem Ómar Ingi Magnússon verður ekki með í leikjunum og ekki heldur Elvar Örn Jónsson, sem er handarbrotinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -