Baldur Fritz Bjarnason, leikmaður ÍR, er sem fyrr markahæsti leikmaður Olísdeildar karla þegar einungis ein umferð er óleikin. Lokaumferðin fer fram annað kvöld þar sem Baldur Fritz verður að líkindum ekki með eftir að hann meiddist í undanúrslitum Powerade bikarsins undir lok síðasta mánaðar.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Hannes Höskuldsson hafa skorað næstflest mörk, 147. Bjarni Ófeigur hefur einnig verið að glíma við meiðsli að undanförnu.
Baldur Fritz stóð uppi sem markakóngur Olísdeildarinnar á síðasta tímabili og er í góðri stöðu til þess að verða það annað tímabilið í röð enda búinn að skora 15 mörkum meira en næstu menn. ÍR er hins vegar á botninum og getur fallið niður í Grill 66 deildina.
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir 25 markahæstu leikmenn Olísdeildar karla fyrir lokaumferðina annað kvöld:
Baldur Fritz Bjarnason, ÍR, 162/61.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA, 147/34.
Hannes Höskuldsson, Selfoss, 147/50.
Bernard Kristján Owusu Darkoh, ÍR, 136/0.
Freyr Aronsson, Haukum, 127/23.
Símon Michael Guðjónsson, FH, 118/53
Garðar Ingi Sindrason, FH, 116/16.
Árni Bragi Eyjólfsson, Aftureldingu, 115/30.
Brynjar Hólm Grétarsson, Þór Akureyri, 114.
Haukur Ingi Hauksson, HK, 114/1.
Andri Erlingsson, ÍBV, 110/0.
Jökull Blöndal Björnsson, ÍR, 110/11.
Ívar Logi Styrmisson, Fram, 108/49.
Ágúst Guðmundsson, HK, 107/7.
Arnór Snær Óskarsson, Val, 107/38.
Ihor Kopyshynskyi, Aftureldingu, 103/28.
Giorgi Dikhaminjia, KA, 102/0.
Hans Jörgen Ólafsson, Stjörnunni, 99/0.
Oddur Gretarsson, Þór Akureyri, 97/39.
Gunnar Róbertsson, Val, 96/18.
Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV, 95/27.
Sigurður Jefferson Guarino, HK, 94.
Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukum, 92/3.
Andri Þór Helgason, HK, 87/29.
Morten Linder, KA, 87/15.
Heimild: HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



