Landsliðskonan Sara Dögg Hjaltadóttir, leikmaður ÍR, trónir ein á toppi listans yfir markahæstu leikmenn Olísdeildar kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir. Hefur hún skorað 30 mörkum meira en næsti leikmaður á listanum, landsliðsfyrirliðinn Sandra Erlingsdóttir hjá ÍBV.
Sara Dögg hefur skorað 172 mörk í 18 leikjum og Sandra er með 142 mörk í jafnmörgum leikjum. Í þriðja sæti er Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Hauka, sem hefur skorað 131 mark.
Þegar enn eru þrjár umferðir óleiknar í Olísdeildinni getur margt breyst en ef fram heldur sem horfir hjá Söru Dögg, sem er búin að skora 9,6 mörk að meðaltali í leik á tímabilinu, verður hún að teljast ansi sigurstrangleg í baráttunni um að verða markadrottning.
Hér fyrir neðan er að finna 25 markahæstu leikmenn Olísdeildar kvenna þegar 18 umferðum af 21 er lokið:
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR, 172/70.
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV, 142/45.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Haukum, 131/38.
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV, 121/0.
Natasja Hammer, Stjörnunni, 114/0.
Lovísa Thompson, Val, 94/0.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val, 90/42.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum, 90/2.
Mia Kristin Syverud, Selfoss, 89/24.
Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram, 88/0.
Tinna Valgerður Gísladóttir, KA/Þór, 84/54.
Susanne Denise Pettersen, KA/Þór, 82/2.
Vaka Líf Kristinsdóttir, ÍR, 81/3.
Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni, 79/25.
Harpa María Friðgeirsdóttir, Fram, 77/0.
Hulda Dís Þrastardóttir, Selfoss, 76/49.
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR, 71/1.
Alexandra Ósk Viktorsdóttir, ÍBV, 71/0.
Hulda Dagsdóttir, Fram, 71/31.
Embla Steindórsdóttir, Haukum, 69/10.
Trude Blestrud Hakonsen, KA/Þór, 69/0.
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir, Val, 65/0.
Ásdís Guðmundsdóttir, Fram, 61/11.
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram, 54/14.
Inga Maria Roysdottir, Stjörnunni, 54/0.
Heimild: HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


