- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi og félagar töpuðu óvænt

- Auglýsing -

IFK Kristianstad, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar, hljóp á sig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir OV Helsingborg, 32:33, í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld. Helsingborg berst í bökkum í neðri hluta deildarinnar.

Aðeins eru tveir sólarhringar síðan Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad léku við Benfica í Lissabon í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. IFK vann leikinn og komst áfram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á kostnað Benfica.


Einar Bragi Aðalsteinsson komst vel frá sínu í liði Kristianstad og skoraði fjögur mörk. Var hann á meðal markahæstu leikmanna í leiknum.

Kristianstad heldur toppsætinu en HK Malmö, sem er í öðru sæti, á leik til góða annað kvöld. Jafnvel þó Malmö vinni mun Kristianstad halda toppsætinu þar sem markatala mun skera úr sigurvegara í úrvalsdeildinni.

Kristianstad er með tæplega 70 mörkum betri markatölu og stendur því enn best að vígi í toppbaráttunni.

IK Sävehof tapaði einnig á heimavelli í kvöld, 28:31 fyrir IFK Skövde. Birgir Steinn Jónsson lék með IK Sävehof en komst ekki á blað að þessu sinni.

Skövde er búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni um sænska meistaratitilinnm, er í fjórða sæti og Sävehof er í fimmta sæti og í prýðis stöðu til þess að komast þangað einnig.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -