- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arnór stýrði Holstebro í úrslitakeppnina

- Auglýsing -

Íslendingalið TTH Holstebro tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitakeppni um danska meistaratitilinn með því að leggja Bjerringbro-Silkeborg örugglega að velli, 36:32, í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í Holstebro í kvöld.

Arnór Atlason er þjálfari Holstebro og Jóhannes Berg Andrason er leikmaður liðsins. Jóhannes skoraði fjögur mörk úr sex skotum í kvöld.


Holstebro er í sjötta sæti með 26 stig þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni. Bjerringbro-Silkeborg er í sjöunda sæti með 25 stig og er einnig komið áfram í úrslitakeppnina.

Því er aðeins eitt sæti laust í úrslitakeppninni. Fredericia, TMS Ringsted, HØJ Elite, Sønderjyske, Ribe-Esbjerg og Nordsjælland eiga öll enn möguleika á því að krækja í síðasta sætið.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -