Selfoss tryggði sér áframhaldandi veru í Olísdeild karla með jafntefli gegn Aftureldingu, 27:27, í lokaumferð deildarinnar í Set höllinni á Selfossi í kvöld.
Selfoss hafnar því í tíunda sæti með 12 stig, fer ekki í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn og ekki heldur í umspil um að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu. Tímabilinu er þar með lokið hjá Selfyssingum.
Afturelding hafnar í sjötta sæti með 26 stig og var liðið þegar búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.
Afturelding var með alla stjórn á leiknum í fyrri hálfleik en hóf fljótlega í síðari hálfleik að gefa eftir. Góður lokakafli skilaði Mosfellingum hins vegar jafntefli.
Selfoss – Afturelding 27:27 (13:17)
Mörk Selfoss: Hannes Höskuldsson 7, Hákon Garri Gestsson 5/2, Tryggvi Sigurberg Traustason 5, Jónas Karl Gunnlaugsson 4, Jason Dagur Þórisson 2, Elvar Elí Hallgrímsson 1, Valdimar Örn Ingvarsson 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1, Valdimar Örn Ingvarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 11/3.
Mörk Aftureldingar: Oscar Lykke 7, Ihor Kopyshynskyi 4, Harri Halldórsson 4, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Stefán Magni Hjartarson 2, Ágúst Ingi Óskarsson 2, Þorvaldur Tryggvason 2, Árni Bragi Eyjólfsson 1/1, Brynjar Búi Davíðsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 7, Sigurjón Bragi Atlason 2.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



