FH hafði örugglega betur gegn ÍR, 34:28, í lokaumferð Olísdeildar karla í Kaplakrika í kvöld. Þar með er ljóst að FH hafnar í öðru sæti deildarinnar og ÍR endar í neðsta sæti og er fallið niður í Grill 66 deildina.
FH vann sér inn 33 stig og ÍR fékk aðeins níu stig í 22 leikjum.
Jafnræði var með liðunum til að byrja með og jafnt á öllum tölum í hálfleik, 17:17. Í síðari hálfleik sýndu Hafnfirðingar hins vegar mátt sinn og megin og unnu að lokum sex marka sigur.
FH – ÍR 34:28 (17:17).
Mörk FH: Gunnar Kári Bragason 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Birgir Már Birgisson 5, Símon Michael Guðjónsson 4, Garðar Ingi Sindrason 4, Birkir Benediktsson 3, Kristófer Máni Jónasson 2, Ágúst Birgisson 2, Ingvar Dagur Gunnarsson 2.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 13, 54,2% varsla, Daníel Freyr Andrésson 6.
Mörk ÍR: Jökull Blöndal Björnsson 12/4, Bernard Kristján Owusu Darkoh 6, Elvar Otri Hjálmarsson 4, Sveinn Brynjar Agnarsson 3, Eyþór Ari Waage 2, Patrekur Smári Arnarsson 1.
Varin skot: Alexander Ásgrímsson 7, Ólafur Rafn Gíslason 6, 60% varsla.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



