Baldur Fritz Bjarnason, leikstjórnandi og stórskytta ÍR, er markakóngur Olísdeildar karla annað tímabilið í röð. Baldur Fritz tók ekki þátt í síðustu þremur leikjum ÍR vegna meiðsla. Liðið féll niður í Grill 66-deildina í gærkvöldi.
Baldur Fritz, sem fer til IFK Kristianstad í Svíþjóð í sumar, skoraði alls 162 mörk í leikjunum 19 og hefði vísast bætt í sarpinn hefði hann haft heilsu til. Hannes Höskuldsson, vinstri hornamaður Selfoss, var næstmarkahæstur með 154 mörk í 21 leik.
ÍR féll og FH tryggði annað sætið
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, stórskytta KA, hefur líkt og Baldur Fritz glímt við meiðsli að undanförnu og hafnaði í þriðja sæti með 147 mörk í 19 leikjum.
Lista yfir 25 markahæstu leikmenn Olísdeildar karla tímabilið 2025/2026 má sjá hér fyrir neðan:
Baldur Fritz Bjarnason, ÍR, 162/61.
Hannes Höskuldsson, Selfoss, 154/50.
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA, 147/34.
Bernard Kristján Owusu Darkoh, ÍR, 142/0.
Freyr Aronsson, Haukum, 134/25.
Brynjar Hólm Grétarsson, Þór Akureyri, 122/0.
Símon Michael Guðjónsson, FH, 122/53.
Jökull Blöndal Björnsson, ÍR, 122/15.
Haukur Ingi Hauksson, HK, 119/1.
Garðar Ingi Sindrason, FH, 120/16.
Arnór Snær Óskarsson, Val, 118/45.
Árni Bragi Eyjólfsson, Aftureldingu, 116/31.
Ágúst Guðmundsson, HK, 113/7.
Ívar Logi Styrmisson, Fram, 110/51.
Andri Erlingsson, ÍBV, 110/0.
Hans Jörgen Ólafsson, Stjörnunni, 109/0.
Giorgi Dikhaminjia, KA, 109/0.
Ihor Kopyshynskyi, Aftureldingu, 107/28.
Gunnar Róbertsson, Val, 102/18.
Sigurður Jefferson Guarino, HK, 99/0.
Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV, 99/27.
Oddur Gretarsson, Þór Akureyri, 98/39.
Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukum, 95/4.
Andri Þór Helgason, HK, 92/33.
Benedikt Marinó Herdísarson, Stjörnunni, 88/34.



