- Auglýsing -
- Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk í öruggum sigri FC Porto á Avanca Bioria, 41:30, á útivelli í síðasta leik efstu deildar portúgölsku handknattleiksdeildarinnar í gærkvöld. FC Porto hafnaði í öðru sæti með 59 stig í 22 leikjum. Benfica varð í þriðja sæti og Aguas Santas hreppti fjórða sætið.
- Sporting Lissabon, sem Orri Freyr Þorkelsson leikur með, varð deildarmeistari með miklum yfirburðum. Liðið vann alla 22 leiki sína.
- Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði einu sinni fyrir RK Alkaloid er liðið gerði jafntefli við grannliðið HC Ohrid, 27:27, í úrslitakeppni sex efstu liðanna í úrvalsdeildinni í Norður Makedóníu í gær. RK Alkaloid situr í fjórða sæti af liðunum sex og virðist eiga sæti í undanúrslitum næsta víst.
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fjögur mörk fyrir Kadetten Schaffhausen þegar liðið tapaði með sex marka mun fyrir HC Kriens-Luzern, 33:27, á útivelli í A-deild svissneska handknattleiksins í gær. Þrátt fyrir tapið hefur Kadetten Schaffhausen yfirburðastöðu í efsta sæti deildarinnar. Níu stigum munar á Kadetten og HC Kriens-Luzern sem er í öðru sæti. Síðarnefnda liðið á leik inni.
- Ólafur Brim Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir ítalska liðið Junior Fasano er það tapaði fyrir Metelli, 31:24, á útivelli í 20. umferð ítölsku A-deildarinnar í gær. Ólafi var einnig vikið af leikvelli í tvær mínútur. Junior Fasano situr enn í fjórða sæti deildarinnar þrátt fyrir brösótt gengi í undanförnum leikjum. Þess má geta að Metelli er í 9. sæti. Cassani er langefst með 36 stig eftir 20 leiki, 14 stigum fleiri en Junior Fasano sem Ólafur Brim leikur með.
- Auglýsing -



