-Auglýsing-

Molakaffi: Dana, Ísak, Sigvaldi, Benedikt, Elías, Sigurjón, Árni, Viktor

- Auglýsing -
  • Dana Björg Guðmundsdóttir fyrirliði Volda skoraði þrjú mörk fyrir liðið í tíu marka sigri á Glassverket, 33:23, á útivelli í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Volda færðist upp í 5. sæti deildarinnar og er tveimur stigum frá því að ná inn í hóp þriggja efstu liða deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.
  • Efsta lið deildarinnar fer rakleitt upp í úrvalsdeildina en þau sem hafna í öðru og þriðja sæti taka þátt í umspili um sætaskipti við tvö neðstu lið úrvalsdeildar. 
  • Ísak Steinsson markvörður landsliðsins og samherjar hans í Drammen HK unnu Nærbø, 33:29, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Ísak var hluta leiksins í marki Drammen og varði 3 skot, 25%, áður en hann meiddist eftir 17 mínútur og varð að fara af leikvelli. Drammen er í fimmta sæti deildarinnar þegar liðið á fjórar viðureignir eftir óleiknar. 
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk, eitt þeirra úr vítaköstum, og Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú mörk er Kolstad lagði Elverum, 26:24, í toppslag norsku úrvalsdeildarinnar í leik. Leikið var á heimavelli Elverum. 
  • Sigurjón Guðmundsson varði níu skot af 21 þá stund sem hann stóð á milli stanganna í marki Kolstad.
  • Elverum er áfram í efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir tapið. Liðið hefur 41 stig. Kolstad er með 39 stig. Hvort lið á þrjá leiki eftir. 
  • Árni Bergur Sigurbergsson skoraði einu sinni er Ryger Stavanger gerði jafntefli við Melhus, 30:30, á heimavelli í gær í næsta efstu deild norska handknattleiksins. Ryger Stavanger er næst neðst í deildinni með 11 stig þegar fjórar umferðir eru eftir. Elías Már Halldórsson þjálfar Ryger út leiktíðina en flyst í sumar til kvennaliðs Storhamar
  • Viktor Petersen Norberg skoraði fimm mörk og gaf fjórar stoðsendingar er Elbflorenz vann HSC 2000 Coburg, 32:29, í 2. deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Elbflorenz er í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir toppliðinu, Bietigheim, þegar 10 umferðir eru eftir.
  • Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -