Justus Fischer, línu- og varnarmaðurinn sterki í liði Hannover-Burgdorf og þýska landsliðsins, hefur samið við THW Kiel um að leika með liðinu frá og með sumrinu 2027.
Fischer, sem er 23 ára gamall, vakti athygli fyrir vasklega framgöngu í þýska liðinu sem vann til silfurverðlauna undir stjórn Alfreðs Gíslasonar á EM 2026 fyrr á árinu.
Sérstaklega lék hann vel í vörninni en er einnig öflugur á línunni, þar sem landsliðsfyrirliðinn Johannes Golla er á undan í goggunarröðinni.
Fischer skrifar undir tveggja ára samning við Kiel, þar sem Alfreð var þjálfari um langt árabil með mögnuðum árangri, en mun spila áfram með Hannover-Burgdorf út yfirstandandi tímabil og allt það næsta. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.




