-Auglýsing-

Olís kvenna: Línur nokkuð skýrar en hart barist við botninn

- Auglýsing -

Þegar tvær umferðir eru óleiknar í Olísdeild kvenna á tímabilinu eru línur orðnar ansi skýrar. Þó er ekki víst hvort Stjarnan eða Selfoss falli beint niður í Grill 66 deildina og hvort þeirra fer í umspil enda barátta liðanna tveggja hörð.

Selfoss er í sjöunda sæti með sex stig og Stjarnan er á botninum með fimm stig. Selfoss komst upp fyrir Stjörnuna með sigri í viðureign liðanna í síðustu umferð, þeirri nítjándu.

Staðan í deildinni:

SætiFélagLeikirSJTStig
1Valur19170234
2ÍBV19150430
3Haukar19111723
4ÍR19110822
5Fram19811017
6KA/Þór19711115
7Selfoss1930166
8Stjarnan1921165

Þegar er ljóst að Valur er deildarmeistari og fer beint í undanúrslit úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hafnar í öðru sæti og fylgir Valskonum beint í undanúrslitin.

Barist um þriðja og fimmta sætið

Fjögur lið í sætum þrjú til sex hafa þá tryggt sæti sín í fyrstu umferð úrslitakeppninnar; Haukar, ÍR, Fram og KA/Þór. Ýmislegt getur þó enn breyst í þeirri baráttu þar sem Haukar og ÍR berjast um þriðja sætið og Fram og KA/Þór berjast um fimmta sætið.

Þó er ljóst að Haukar og ÍR hafa þegar tryggt sér heimavallarréttinn í viðureignum sínum gegn Fram og KA/Þór í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

20. umferð Olísdeildar kvenna fer fram í heild sinni á miðvikudagskvöldið 18. mars og lokaumferðin fer svo fram aðeins þremur dögum síðar, laugardaginn 21. mars. Í síðustu tveimur umferðunum er von á nokkrum æsispennandi viðureignum.

20. umferð þann 18. mars:

Set höllin: 18.00, Selfoss – Haukar
Heklu höllin: 18.00, Stjarnan – Fram
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja: 18.00, ÍBV – ÍR
KA heimilið: 18.00, KA/Þór – Valur

21. umferð þann 21. mars:

N1 höllin: 14.00, Valur – ÍBV
Lambhagahöllin: 14.00, Fram – KA/Þór
Skógarsel: 14.00, ÍR – Selfoss
Kuehne+Nagel höllin: 14.00, Haukar – Stjarnan

Staðan og næstu leikir í Olísdeild kvenna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -