Michael Apelgren, þjálfari sænska karlalandsliðsins, hefur neyðst til þess að gera nokkrar breytingar á leikmannahópi sínum fyrir tvo vináttuleiki gegn Íslandi síðar í vikunni. Alls hafa þrír öflugir leikmenn þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Þeir eru Jonathan Carlsbogård, vinstri skytta FC Barcelona, línumaðurinn Max Darj hjá Füchse Berlín og hægri skyttan Sebastian Karlsson, leikmaður PSG.
Svíar mæta með sitt sterkasta lið til Íslands og eru sagðir í hefndarhug
Í þeirra stað hefur Apelgren kallað inn línumanninn Hugo Stuivers, leikmann HK Malmö, og Isak Persson, hægri skyttu sem leikur einnig með HK Malmö.
Stuivers er nýliði og bætist þar með í hóp markvarðarins Marko Roganovic, leikmanns Bjerringbro/Silkeborg, sem freista þess að spila sína fyrstu A-landsleiki gegn Íslandi.
Fyrri leikur Íslands og Svíþjóðar fer fram fimmtudagskvöldið 19. mars klukkan 19.30 á Hlíðarenda. Sá síðari fer fram laugardaginn 21. mars klukkan 17 í Kaplakrika.



