-Auglýsing-

HSÍ setur VIP-miða í sölu – miðinn á 25 þúsund krónur

- Auglýsing -

Handknattleikssamband Íslands hefur sett sérstaka VIP-miða í sölu fyrir tvo vináttulandsleiki karlalandsliðsins gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Einn VIP-miði kostar 24.900 krónur og inniheldur ýmis fríðindi, þeirra á meðal sæti næst keppnisvöllunum fyrir aftan varamannabekki liðanna á Hlíðarenda og í Kaplakrika.

Vísir vekur athygli á þessari nýjung HSÍ og listar upp dagskrána fyrir handhafa VIP-miða fyrir báða leiki. Fyrri leikurinn fer fram á Hlíðarenda fimmtudaginn 19. mars klukkan 19.30 og síðari leikurinn í Kaplakrika laugardaginn 21. mars klukkan 17.


Miðasala á leikina tvo fer fram á Stubbi.

Dagskráin fyrir VIP miðahafa 19. mars:

  • Opnar klukkan 18.00.
  • Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson á pallborði sem Jóhann Alfreð sér um.
  • Hreimur Örn Heimisson peppar fólkið með gítarnum.
  • Pinnamatur og drykkir í boði hússins.
  • Frátekin sæti bak við varamannabekki.

Dagskráin fyrir VIP miðahafa 21. mars:

  • Opnar klukkan 15.30.
  • Aron Pálmarsson auk leynigests á pallborði sem Jóhann Alfreð sér um.
  • Tónlistaratriði.
  • Pinnamatur og drykkir í boði hússins.
  • Frátekin sæti bak við varamannabekki.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -