- Auglýsing -
- Franska landsliðskonan Grace Zaadi hefur kvatt slóvenska meistaraliðið RK Krim Ljubljana og samið við franska meistaraliðið Metz. Hún styrkir franska liðið verulega enda ein fremsta handknattleikskona Evrópu. Metz-liðið verður enn öflugra á lokaspretti Meistaradeildar Evrópu með óvæntum liðsauka í Zaadi. Metz hefur aldrei unnið Meistaradeildina og í reynd aðeins unnið einu sinni bronsverðlaun.
- Zaadi á að fylla skarðið sem þýska landsliðskonan Xenia Smits skilur eftir sig. Smits er komin í fæðingarorlof frá handbolta um skeið. Hún er þunguð og verður frá keppni næstu mánuði.
- Frakkinn Thierry Anti hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Túnis í handknattleik karla. Anti er þrautreyndur þjálfari en hefur ekki áður þjálfað landslið. Hann var m.a. þjálfari Nantes í 10 ár, frá 2009 til 2019, og stýrði liðinu m.a. alla leiðina í úrslit Meistaradeildar Evrópu 2018.
- Mathias Madsen tekur í sumar við sem þjálfari danska handknattleiksliðsins Fredericia HK í karlaflokki. Madsen var síðast þjálfari Skjern en var leystur frá störfum í október. Nokkru áður var Guðmundur Þórður Guðmundsson leystur frá störfum hjá Fredericia HK og Jesper Houmark og Michael Wollesen tóku tímabundið við þjálfun liðsins.
- Grikkinn Spyros Balomenos tekur við þjálfun austurríska liðsins Alpla Hard af Hannesi Jóni Jónssyni í sumar. Balomenos þekkir vel til í Austurríki og hefur m.a. náð athyglisverðum árangri með HSG Graz undanfarin þrjú ár. Tilkynnt var í janúar að Hannes Jón léti af störfum hjá Alpla Hard í sumar eftir fimm ára veru.
- Þýska handknattleiksliðið Thüringer HC hefur samið við Mai Gomaa markvörð egypska kvennalandsliðsins í handknattleik. Gomaa kemur til þýska liðsins í sumar eftir veru hjá pólska liðinu Energa AZS Koszalin. Herbert Müller hinn þrautreyndi þjálfari Thüringer HC bindur miklar vonir við Gomaa.
- Stjórnendur danska úrvalsdeildarliðsins SønderjyskE sögðu þjálfara karlaliðs félagsins, Rasmus Vandbæk, upp störfum á sunnudagsmorgun. Ríkja mikil vonbrigði með árangur liðsins á leiktíðinni og sú staðreynd að SønderjyskE situr í 10. sæti af 14 liðum þegar tvær umferðir eru liðnar veldur gremju innan félagsins. Tap fyrir næst neðsta liðinu, Nordsjælland, á heimavelli á laugardaginn gerði illt verra og veldur því að SønderjyskE á ekki lengur tök á að krækja í sæti í úrslitakeppni átta efstu liða um danska meistaratitilinn. Aðstoðarmaður Vandbæk stýrir liðinu út leiktíðina.
- Auglýsing -




