-Auglýsing-

Handboltahöllin: Tímabilið gríðarleg vonbrigði

- Auglýsing -

Botnbaráttuslagur Selfoss og Stjörnunnar í 19. umferð Olísdeildar kvenna endaði með 35:33 sigri Selfoss í Set höllinni. Með sigrinum fór  Selfoss af botninum og hafði sætaskipti við Stjörnuna. Tímabilið hefur verið gríðarleg vonbrigði fyrir Stjörnuna, sem er einungis með fimm stig á botninum.

„Ég held að það sé að sjálfsögðu óhætt að segja það. Liðið er á botninum núna þegar tvær umferðir eru eftir og þetta eru erfiðir leikir fram undan. Mér finnst Stjörnuliðið vera betra heldur en þetta. Mér finnst Stjörnuliðið vera betra heldur en að vera í áttunda sæti með aðeins fimm stig,“ sagði sérfræðingurinn Rakel Dögg Bragadóttir í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld.

Dagskráin: Næst síðasta umferð í kvöld


Stjarnan á erfiða leiki fyrir höndum í tveimur síðustu umferðum Olísdeildarinnar. Fyrst fær liðið Fram í heimsókn í Heklu höllina í Garðabæ í kvöld og heimsækir svo Hauka á Ásvelli í lokaumferðinni á laugardag.

Að duga eða drepast

„Tvö af þessum fimm stigum komu gegn Fram rétt fyrir jól þannig að auðvitað er það klárt mál að það er geta þarna til staðar og þær geta klárað þennan leik á móti Fram. Fram er öflugt lið en er líka sveiflukennt og þær eru búnar að missa Ölfu [Brá Oddsdóttur Hagalín] út.


Við erum búin að sjá þær eiga frábæra leiki en líka svolítið slaka leiki. Þannig að auðvitað er möguleiki þar. Þær verða að fá sigur, það er ekki nóg að jafna Selfoss sem er yfir innbyrðis.

Það er bara að duga eða drepast fyrir Stjörnustelpur en það er auðvitað það sama sem gildir hjá Selfoss. Þær eru núna komnar í góða stöðu en vita að þetta er ekki tryggt þannig að þær hljóta líka að fara þannig inn í þessa tvo leiki,“ sagði Rakel Dögg einnig.


Ítarlega greiningu sérfræðingsins Ásbjörns Friðrikssonar á leik Selfoss og Stjörnunnar ásamt umræðu um möguleika tveggja neðstu liðanna má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -