-Auglýsing-

Svarar framkvæmdastjóranum fullum hálsi

- Auglýsing -

Kentin Mahé, leikmaður Íslendingaliðs VfL Gummersbach í Þýskalandi og fyrrverandi leikmaður One Veszprém, gefur lítið fyrir hótanir Csaba Bartha, framkvæmdastjóra Veszprém, um að refsa leikmönnum liðsins fyrir að tapa leikjum.


Bartha skrifaði í harðorðri yfirlýsingu að hann þyrfti að grípa til harðra refsinga, til að mynda peningasekta, tapi Veszprém fleiri leikjum á tímabilinu.

Framkvæmdastjóri Veszprém hótar leikmönnum hörðum refsingum

Innistæðulausar hótanir

„Ég man að framkvæmdastjórinn hótaði okkur líka með fjárhagslegum afleiðingum þegar við gengum í gegnum erfitt tímabil. En allt slíkt er hluti af samningum leikmanna. Þess vegna eru þessar hótanir í grundvallaratriðum innistæðulausar,“ sagði Mahé í samtali við Handball World.

Mahé lék með Veszprém frá 2018 til 2024. Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson er leikmaður liðsins og hefur verið frá árinu 2022. Samningur Bjarka Más rennur út í sumar og mun umboðsmaður hans vera að líta í kringum sig þessar vikurnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -