-Auglýsing-

Ljóst hvaða 17 leikmenn spila í kvöld – Janus utan hóps

- Auglýsing -

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins hefur tilkynnt hvaða 17 leikmenn munu koma til með að taka þátt í vináttulandsleik gegn Svíþjóð á Hlíðarenda í kvöld. Er þetta fyrsti leikur Íslands síðan á Evrópumótinu fyrr á árinu.

Leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2 auk þess að vera lýst í beinni textalýsingu hér á handbolti.is.


Eini leikmaðurinn sem er utan hóps að þessu sinni er Janus Daði Smárason, sem glímir við meiðsli. Reynir Þór Stefánsson leikur þá sinn annan A-landsleik.

Leikmannahópurinn er sem hér segir:

Markverðir:

Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26)
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2)

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8)
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170)
Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205)
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78)
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213)
Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27)
Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48)
Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248)
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48)
Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39)

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -