- Auglýsing -
Þýskaland undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og Króatía, sem Dagur Sigurðsson þjálfar, unnu bæði góða sigra í vináttulandsleikjum karla á heimavöllum sínum í kvöld. Þýskaland lagði Egyptaland 41:38 í tæplega 80 marka leik í Dortmund og Króatía vann Sviss 34:26 í Zagreb.
Þýskaland mætir Egyptalandi aftur í vináttulandsleik á sunnudaginn en sá leikur fer fram í Bremen. Króatía og Sviss mætast einnig aftur í vináttulandsleik á laugardag.
Fleiri vináttuleikir fóru fram í kvöld en þar má nefna að Eistland hafði betur gegn Bretlandi, 32:25, í Tallinn.
Þá eigast nú við Frakkland og Spánn í fyrsta leik Spánverjans Talant Dujshebaev við stjórnvölinn hjá franska landsliðinu.
- Auglýsing -



