-Auglýsing-

Skrítið að fara frá Kolstad en er spenntur fyrir sterkustu deild í heimi

- Auglýsing -

Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson samdi í vikunni við þýska félagið TSV Hannover-Burgdorf og skrifaði undir þriggja ára samning sem tekur gildi í sumar.

Hann yfirgefur þá norska félagið Kolstad IL eftir fjögurra ára dvöl. Kolstad frá Þrándheimi á í miklum fjárhagsörðugleikum og missir um þessar mundir hvern lykilmanninn á fætur öðrum frá sér með það fyrir augum að skera niður háan launakostnað.

„Var ógeðslega leiðinlegt að missa af janúar“


Í samtali við handbolta.is eftir tap Íslands fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á Hlíðarenda í gærkvöldi var Sigvaldi Björn spurður að því hvernig honum þætti að Kolstad ævintýrinu væri að ljúka og nýtt að hefjast í þýsku 1. deildinni.

Margt búið að gerast í Kolstad

„Það er auðvitað skrítið. Ég er búinn að vera partur af Kolstad og þessu verkefni þeirra svolítið lengi. Þetta eru búin að vera fjögur góð ár en nú er bara kominn tími til þess að halda áfram. Það er margt búið að gerast í Kolstad.

Núna tók ég bara ákvörðun um að prófa eitthvað nýtt og mér leist vel mjög á Hannover. Ég er mjög spenntur að fara í Bundesliguna, sterkustu deild í heimi, þannig að ég hlakka til,“ sagði Sigvaldi Björn hreinskilinn.


Sigvaldi Björn verður aftur í eldlínunni með Íslandi þegar liðið mætir Svíþjóð öðru sinni í vináttulandsleik, nú í Kaplakrika, klukkan 17 á morgun. Uppselt er á leikinn.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -