-Auglýsing-

Myndskeið: Lygilegar lokasekúndur þegar Stjarnan bjargaði sér

- Auglýsing -

Stjarnan tryggði sér í dag sjöunda sætið í Olísdeild kvenna þegar liðið krækti í dramatískt jafntefli gegn Haukum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.

Lokasekúndurnar voru hreint lygilegar þar sem Inga Maria Roysdóttir jafnaði metin fjórum sekúndum fyrir leikslok með laglegu gegnumbroti og góðu skoti.

Stjarnan bjargaði sér fyrir horn og Selfoss féll


Þar með var hins vegar ekki öll sagan sögð þar sem Stjarnan hafði stillt upp í sjö á sex í lokasókn sinni og markið því autt. Haukar náðu að taka hraða miðju og skora í tómt markið.

Markið stóð hins vegar ekki þar sem Stefán Arnarson þjálfari Hauka ákvað á einhvern óskiljanlegan hátt að taka leikhlé. Stefán spretti að ritaraborðinu og var búinn að taka leikhlé tveimur sekúndum fyrir leikslok, sem þýddi að sigurmark Hauka fékk ekki að standa og Stjarnan fer í umspil um að halda sæti sínu í Olísdeildinni.

Handkastið birti myndskeið af lygilegum lokasekúndum leiksins sem má sjá hér:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -