Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, var á því að síðari vináttulandsleikur Íslands við Svíþjóð í Kaplakrika í kvöld hafi verið áþekkur þeim fyrri á fimmtudagskvöld. Báðir leikir töpuðust, sá fyrri með tveimur mörkum og sá síðari með þremur.
„Þessi leikur var kannski ekkert ósvipaður að því leytinu til að í fyrri leiknum var það takturinn sóknarlega og í seinni leiknum var það takturinn varnarlega sem gekk vel, svona sérstaklega framan af. Það er svekkjandi að ná ekki báðum hlutunum í einu,“ sagði Snorri Steinn í samtali við handbolta.is eftir leikinn.
Annar sænskur sigur á íslenskri grund
Apelgren ver helvíti mikið
„Í fyrri hálfleik í dag var ég mjög ánægður með varnarleikinn. Mér fannst við svara vel fyrir fyrri leikinn. Bæði lið hafa greinilega sett ríka áherslu á það að spila betri vörn en það var fannst mér smá taktleysi í okkur framan af sóknarlega en svo fundum við taktinn hægt og rólega.
Auðvitað erum við líka að rúlla á liðinu og erum að skapa okkur fullt af færum. Hann ver náttúrlega helvíti mikið [Mikael] Apelgren í báðum leikjunum og Viktor [Gísli Hallgrímsson] var svo sem góður líka í dag.
En það er alltaf svekkjandi að tapa. Það eru alveg einhver augnablik sem ég er ánægður með og svo eins og gengur annað sem ég er ekki eins gott. Þegar þú tapar ertu auðvitað alltaf svekktur,“ sagði hann einnig.
Þokkalega sáttur við vikuna
Beðinn um að gera verkefnið upp í heild sinni sagði Snorri Steinn:
„Ég geri það kannski aðeins betur upp í næstu viku en ég er alveg þokkalega sáttur við vikuna. Það er alltaf svekkjandi að tapa og það nærir meira að vinna leiki en ég fékk fullt út úr þessu.
Við gátum spilað á fullt af mönnum. Það er alltaf gott að koma saman og gaman að spila hérna heima fyrir framan fullar hallir en auðvitað smá fúlt að vinna ekki.“



