Juri Knorr, ein stærsta stjarna þýska karlalandsliðsins, bindur vonir við að gott samstarf hans og landsliðsþjálfarans Alfreðs Gíslasonar haldi áfram fram yfir HM 2027 í Þýskalandi. Samningur Alfreðs rennur út að mótinu loknu.
Alfreð, sem er 66 ára gamall, hefur gefið það út að hann vilji framlengja samning sinn við þýska handknattleikssambandið.
Alfreð vill gjarna framlengja í Þýskalandi
„Ég þekki Alfreð einungis sem landsliðsþjálfara og er ég honum mjög þakklátur fyrir allt sem hann hefur gert mér kleift að áorka. Ég vona að við fáum að halda áfram að vinna saman,“ sagði Knorr í samtali við Handball World.
Landsliðsfyrirliðinn Johannes Golla tók ekki jafn djúpt í árinni en sagði þó: „Við erum ekki mikið að hugsa um þetta. Við erum að reyna að nýta tímann með Alfreð sem best og halda áfram á þeirri vegferð sem við hófum saman sem lengst og sem bestum mögulegum árangri.“


