- Auglýsing -
HK hefur samið við Alex Mána Oddnýjarson um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Alex Máni kemur frá Fjölni, þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.
Alex Máni er 22 ára gamall örvhentur hornamaður sem skoraði 57 mörk í 19 leikjum fyrir Fjölni í Grill 66 deildinni á tímabilinu.
HK leikur í Olísdeildinni og er á leið í átta liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Þar mætir liðið deildarmeisturum Vals í fyrstu umferð.
„Innan félagsins er mikil ánægja með komu hans og bindum við miklar vonir við að hann á næstu misserum. Við hlökkum til að starfa með Alex Mána í Kórnum og fylgjast með honum vaxa og dafna í HK búningnum,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar HK.
- Auglýsing -



