Simon Pytlick, leikmaður SG Flensburg-Handewitt og danska landsliðsins, er óánægður með forvígismenn þýska félagsins og upplifir sig svikinn. Pytlick á að ganga til liðs við Füchse Berlín sumarið 2027 en nýjustu ummæli hans þykja renna stoðum undir það að Pytlick fari til Berlínar strax í sumar.
„Já, ég verð að viðurkenna það. Það hefur ýmislegt gerst og traustið hefur verið rofið. Það er satt,“ sagði Pytlick í samtali við dönsku sjónvarpsstöðina TV2, spurður hvort hann treysti ekki lengur þeim sem stjórna hjá Flensburg-Handewitt.
Ber ekki saman um málsatvik
Pytlick er samningsbundinn Flensburg-Handewitt til 2030, með ákvæði um að geta farið annað árið 2027, sem Füchse Berlín hefur nýtt sér. Honum og Holger Glandorf, framkvæmdastjóra félagsins, ber ekki saman um málsatvik þegar kom að framlengingu á núverandi samningi.
Pytlick kveðst hafa samþykkt að fjarlægja ákvæði úr samningi sínum sem hefði gert honum kleift að fara annað sumarið 2026 vegna mikillar trúar á verkefnið undir stjórn Nicolej Krickau.
Tvær grímur hafi hins vegar runnið á Pytlick þegar Krickau var rekinn úr starfi þjálfara stuttu eftir að hann samþykkti nýja samninginn. „Ég vil ekki fara í smáatriði en ég get staðfest að þessir atburðir áttu sér stað eins og lýst er.“
Fullyrðingarnar vekja undrun hjá Flensburg
„Fullyrðingar um meint rof á trausti eftir að Nicolaj Krickau var látinn taka pokann sinn vekja undrun okkar, sérstaklega þar sem að aðilar samþykktu í kjölfarið framlengingu á samningi til 2030,“ sagði Glandorf í samtali við TV2.
Pytlick skrifaði sannarlega undir nýja samninginn nokkrum mánuðum eftir að Krickau var rekinn og útskýrir hvers vegna: „Ég gerði það því ég var sannfærður um að leiðin til vegsemdar með Flensburg lægi í því að koma stöðugleika á fót.“
Slíkum stöðugleika hafi hins vegar ekki verið komið á fót að mati Pytlicks. Til að mynda er núverandi þjálfarinn Flensburg-Handewitt, Ales Pajovic, valtur í sessi.



