Handknattleikssambönd Serbíu, Svartfjallalands og Norður-Makedóníu hafa ákveðið að taka höndum saman og stofna sameiginlega Balkanskaga deild sem mun samanstanda af liðum frá þjóðunum þremur. Um bæði karla og kvenna deildir verður að ræða.
Eftir að forsvarsmenn sambandanna þriggja funduðu var stefnan sett á að keppni myndi hefjast í bæði karla og kvenna deildum strax í september. Ekki hefur komið fram nákvæmlega hvaða félög munu taka þátt en samböndin gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem áætlanirnar voru opinberaðar.
Samkvæmt yfirlýsingunni miða fyrstu drög að karla deildinni út frá því að fjögur lið frá Serbíu, fjögur frá Norður-Makedóníu og tvö frá Svartfjallalandi muni mynda nýja tíu liða deild.
Samkvæmt yfirlýsingunni verður endanleg ákvörðun um fyrirkomulag deildanna tekin á fundi í Skopje í apríl. Forvígismönnum félaganna verður boðið á þann fund svo þeim sé unnt að taka virkan þátt í ákvarðanatökum.



