- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Katrín Helga var langmarkahæst í Grill deild kvenna

- Auglýsing -

Katrín Helga Davíðsdóttir, leikmaður Aftureldingar, er markadrottning Grill 66 deildar kvenna tímabilið 2025/2026 eftir að hafa borið af í markaskorun í deildinni. Katrín Helga skoraði 204 mörk í 21 leik, 37 mörkum fleiri en næsti leikmaður.

Laufey Helga Óskarsdóttir úr Val 2 var næstmarkahæst með 167 mörk í 20 leikjum. Thelma Dögg Einarsdóttir hjá FH var þriðja markahæst með 148 mörk í 21 leik.


Hin 19 ára gamla Sara Rún Gísladóttir úr Fram 2 lét sömuleiðis vel að sér kveða en hún skoraði 141 mark í 16 leikjum og var því með tæplega níu mörk að meðaltali í leik.

Aðeins markadrottningin Katrín Helga var með fleiri mörk að meðaltali, tæplega tíu, í leik.

Listann yfir 25 markahæstu leikmenn Grill 66 deildar kvenna er að finna hér fyrir neðan:

Katrín Helga Davíðsdóttir, Aftureldingu, 204.
Laufey Helga Óskarsdóttir, Val 2, 167.
Thelma Dögg Einarsdóttir, FH, 148.
Ída Margrét Stefánsdóttir, Gróttu, 142.
Sara Rún Gísladóttir, Fram 2, 141.


Valgerður Elín Snorradóttir, Víkingi, 132.
Berglind Benediktsdóttir, Fjölni, 128.
Tinna Ósk Gunnarsdóttir, HK, 113.
Stefanía Ósk Engilbertsdóttir, Fjölni, 106.
Katla Kristín Hrafnkelsdóttir, Fram 2, 96.


Inga Fanney Hauksdóttir, HK, 92.
Auður Brynja Sölvadóttir, Víkingi, 91.
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir, HK, 82.
Susan Ines Barinas Gamboa, Aftureldinu, 81.
Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir, Gróttu, 75.


Eva Guðrúnardóttir Long, FH, 74.
Birna Ósk Styrmisdóttir, Fram 2, 72.
Katrín S. Scheving Thorsteinsson, Gróttu, 71.
Sara Kristín Pedersen, Fjölni, 66.
Hildur Guðjónsdóttir, Víkingi, 61.


Gyða Kristín Ásgeirsdóttir, FH, 59.
Guðrún Hekla Traustadóttir, Val 2, 55.
Hafdís Shizuka Iura, Víkingi, 49.
Amelía Laufey G. Miljevic, HK, 49.
Ragnhildur Edda Þórðardóttir, FH, 47.

Heimild: HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -