Giorgi Dikhaminjia, hægri hornamaður KA og georgíska landsliðsins, meiddist í leik með Georgíu gegn Ísrael í forkeppni HM 2027 í síðustu viku. Af þeim sökum er tímabili hans með KA lokið.
Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, greindi frá þessu í samtali við Handkastið. Um verulegt áfall er að ræða fyrir KA sem hefur leik í átta liða úrslitakeppni Olísdeildarinnar gegn ÍBV í Vestmannaeyjum annað kvöld.
Dikhaminjia er næstmarkahæsti leikmaður KA á tímabilinu með 109 mörk í Olísdeildinni og lék hann alla 22 leiki liðsins í deildinni.
KA hefur verið í meiðslavandræðum að undanförnu. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, markahæsti leikmaður liðsins, hefur glímt við meiðsli á fingri og hefur ekki getað beitt sér af fullum krafti í leikjum vegna þeirra.
Þá sleit varnarjaxlinn Daði Jónsson hásin fyrr í mánuðinum auk þess sem Morten Linder fór úr axlarlið í síðasta mánuði.


