- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hans Óttar heiðraður fyrir landsliðsferilinn

- Auglýsing -

Hans Óttar Lindberg Tómasson, Daninn með íslensku foreldrana sem lék með danska landsliðinu í 22 ár, var heiðraður fyrir magnaðan landsliðsferil sinn eftir sigur Danmerkur á Bandaríkjunum í alþjóðlega mótinu Golden League í Kaupmannahöfn á laugardag.

Hans Óttar, sem er 44 ára gamall, lék 308 A-landsleiki fyrir Danmörku frá 2003 til 2024 og er enn að spila sem atvinnumaður. Það gerir hann með HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni.


Eftir sigur Danmerkur í Royal Arena í Kaupmannahöfn gekk Hans Óttar inn á völlinn með tveimur sonum sínum, þar sem þeir feðgar horfðu saman á myndskeið af hans helstu afrekum á stórum skjá í keppnishöllinni, sem hafði verið sett saman fyrir hægri hornamanninn.

Lindberg var „tolleraður“ af landsliðsmönnum eftir að hafa tekið við viðurkenningu frá danska handknattleikssambandinu. Ljósmynd/EPA

„Það er mikilvægt að við höldum áfram að heiðra og færa þessum leikmönnum þakkir fyrir það sem þeir áorkuðu,“ sagði landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen í samtali við BT, en Hans Óttar varð til að mynda Evrópu-, Ólympíu- og heimsmeistari með danska liðinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -