Elín Klara Þorkelsdóttir hafnaði í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og var aðeins einu marki á eftir markahæsta leikmanninum.
Elín Klara skoraði sjö mörk fyrir IK Sävehof í 32:30 tapi fyrir Skara HF í lokaumferð deildarinnar í gærkvöldi. Alls skoraði hún 141 mark í 22 leikjum í deildarkeppninni. Senn hefst úrslitakeppnin um sænska meistaratitilinn.
Sävehof var fyrir nokkru síðan búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en Skara tryggði sér þriðja sætið í deildinni með sigrinum í gær. Lena Margrét Valdimarsdóttir komst ekki á blað hjá Skara að þessu sinni.
Berta Rut Harðardóttir kvaddi Kristianstad HK með því að skora eitt mark fyrir liðið í 32:25 tapi fyrir HK Aranäs í gærkvöldi. Kristianstad hafnar í tíunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og hefur lokið leik á tímabilinu. Berta Rut heldur heim á leið til Hauka í sumar.


