Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar kvenna valið. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, var þar útnefnd besti leikmaður tímabilsins 2025/2026.
Hafdís átti stórbrotið tímabil, var oft og tíðum með yfir 50% markvörslu í leik og var þegar upp var staðið með 40,5% markvörslu að meðaltali á tímabilinu. Varði hún að meðaltali tæplega 14 skot í leik.
Sara Dögg Hjaltadóttir, langsamlega markahæsti leikmaður deildarinnar, er á sínum stað í stöðu leikstjórnanda og Lovísa Thompson fær bæði sæti í vinstri skyttunni auk þess að vera valin besti varnarmaðurinn.
Anton Rúnarsson var valinn besti þjálfarinn á sínu fyrsta tímabili með deildarmeistara Vals og Stjarnan þótti mestu vonbrigðin.
Úrvalslið Olísdeildar kvenna 2025/2026:
Markvörður: Hafdís Renötudóttir, Val.
Vinstri hornamaður: Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum.
Vinstri skytta: Lovísa Thompson, Val.
Leikstjórnandi: Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR.
Hægri skytta: Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV.
Hægri hornamaður: Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val.
Línumaður: Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR.
Besti leikmaður: Hafdís Renötudóttir, Val.
Besti varnarmaður: Lovísa Thompson, Val.
Besti nýliðinn: Arna Karitas Eiríksdóttir, Val.
Besti þjálfarinn: Anton Rúnarsson, Val.
Mestu vonbrigðin: Stjarnan.
Umræðu um úrvalslið Olísdeildar kvenna og aðra verðlaunahafa má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.
Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026.



