Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru sérfræðingar þáttarins, Einar Ingi Hrafnsson og Rakel Dögg Bragadóttir, ítarlega yfir úrslitakeppni Olísdeildar karla þar sem barist verður til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn.
Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þarf aðeins tvo sigra til þess að komast áfram í undanúrslit. „Þetta gæti í raun og veru verið búið eftir fjóra daga fyrir annað liðið,“ sagði Rakel Dögg.
Fyrsta umferð hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem Valur og HK etja kappi í N1 höllinni á Hlíðarenda og ÍBV og KA mætast í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Annað kvöld mætast svo FH og Fram í Kaplakrika ásamt Haukum og Aftureldingu í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.
Ítarlega umræðu Handboltahallarinnar um viðureignirnar fjórar má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026.


