- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ólafur Andrés leggur skóna á hilluna

- Auglýsing -

Ólafur Andrés Guðmundsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu. Sænska félagið HF Karlskrona tilkynnti nýverið að Ólafur Andrés myndi fara frá félaginu í sumar þegar samningur hans rennur út.

Í samtali við Handkastið staðfesti Ólafur Andrés, sem er 35 ára gamall, að skórnir séu á leiðinni á hilluna.


Á tímabilinu hefur hann ekkert getað spilað með Karlskrona vegna brjóskloss í baki og hefur lítið getað beitt sér vegna vöðvameiðsla undanfarin ár. Ólafur Andrés lýkur í vor námi í viðskiptafræði og leitar sér nú að vinnu í Kristianstad, þar sem hann er búsettur ásamt fjölskyldu sinni.

Ólafur Andrés hóf feril sinn með uppeldisfélaginu FH og hélt ungur að árum til AG København í Danmörku. Þaðan lá leiðin til Nordsjælland og svo til IFK Kristianstad. Hann reyndi svo fyrir sér í þýsku 1. deildinni með Hannover-Burgdorf.

Ólafur Andrés gekk svo aftur til liðs við Kristianstad og var þar í sex ár, lék síðar með Montpellier í Frakklandi og GC Amicitia Zürich í Sviss og samdi svo við Karlskrona árið 2023, þar sem ferlinum lýkur brátt.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -