- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Víkingur vill hætta að vera jójó-lið: „Ekki einir með það markmið“

- Auglýsing -

„Tilfinningin er mjög góð. Við erum mjög ánægðir með vegferðina sem við erum á. Strákarnir eiga mikið hrós skilið fyrir vinnusemina og eljuna sem þeir hafa lagt í verkefnið síðastliðin tvö ár,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur, í samtali við handbolta.is. Víkingur tryggði sér nýverið sigur í Grill 66 deildinni og leikur því í Olísdeildinni á næsta tímabili.

Grótta veitti Víkingi harða keppni allt til enda en bæði lið unnu sér inn 40 stig. Víkingur stóð hins vegar betur að vígi í innbyrðis viðureignum liðanna tveggja.


„Þessi barátta var bara skemmtileg, þetta voru verðugir andstæðingar. Við vorum klaufar sjálfir í tveimur leikjum í vetur að leyfa þessu að fara þangað. Í tveimur leikjum vantaði meiri stöðugleika í okkur til þess að verða meira afgerandi í deildinni.

En Grótta er með vel spilandi lið og það eru flottir strákar þar sem veittu okkur harða keppni,“ segir Aðalsteinn um æsispennandi toppbaráttu Víkings við Gróttu, sem fer í umspil um sæti í Olísdeildinni.

Búnir að stefna að þessu leynt og ljóst

Hann er áfram samningsbundinn Víkingi, þar sem Aðalsteinn er einnig yfirmaður handknattleiksmála. „Já, ég er samningsbundinn Víkingi til 2028, bæði sem þjálfari og yfirmaður handknattleiksmála. Það er sami samningur,“ útskýrir hann og kveðst spenntur fyrir því að taka slaginn með liðinu í Olísdeildinni.

„Já, við erum búnir að stefna að þessu leynt og ljóst núna í tvö ár. Að undirbúa félagið til þess að takast á við þær áskoranir sem blasa við okkur núna. Ég held að félagið hafi aldrei verið jafn vel í stakk búið til þess að takast á við það verkefni, bæði félagið í heild sinni og handknattleiksdeildin sem slík.

Það er komin góð stjórn og skipulag í félaginu sem er tilbúið að vaxa áfram. Aðstaðan er náttúrlega fyrsta flokks í Safamýri og það eru miklar framkvæmdir sem verða þar núna í vor og sumar, sem gerir það að verkum að ég held að aðstaðan verði fyrsta flokks hér hjá Víkingi til áframhaldandi uppbyggingar.“

Maður byggir ekki á sandi

Loðað hefur við lið Víkings mörg undanfarin ár að vera svokallað jójó-lið, þ.e. að það fari mjög reglulega upp og niður um efstu tvær deildirnar. Aðalsteinn vill vitanlega stemma stigu við þeirri þróun.

„Ég held að við séum ekkert einir með það markmið. En það er þannig með íþróttirnar að við erum leynt og ljóst að vinna í okkar strúktúr og skipulagi. Eins og segir í laginu fræga þá byggir maður ekki á sandi.

Það þarf að byggja traustan grunn í gegnum yngri flokka félagsins, skipulag og hvernig hugmyndafræði félagsins er undir þannig að áframhaldandi vöxtur sé mögulegur.

Það er alveg ljóst að það skiptir okkur sköpum núna að halda rétt á spöðunum til þess að fá að finna stöðugleika uppi í Olísdeildinni, þar sem við getum haldið áfram að taka næsta skref,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -