Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason er ansi spenntur fyrir því að ganga til liðs við spænska stórveldið Barcelona í sumar, þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning. Í dag var staðfest að Janus Daði fari frá ungverska félaginu Pick Szeged þegar samningur hans rennur út í sumar.
Janus Daði hefur verið á mála hjá Pick Szeged undanfarin tvö tímabil og var þar á undan í eitt ár hjá SC Magdeburg og varð þýskur meistari með liðinu. Á atvinnumannsferlinum hefur hann auk þess leikið með Kolstad Håndball í Noregi, Frisch Auf! Göppingen í Þýskalandi og Aalborg Håndbold í Danmörku.
Janus Daði hefur samið við Barcelona til þriggja ára
„Ég vona að ég geti lagt mitt af mörkum með styrk mínum og hugarfari hjá liði sem er nú þegar afar sigursælt. Það var ekki erfitt að gera upp hug sinn þegar Barcelona hafði samband.
Þetta er líklega stærsta félag heims og það er heiður fyrir mig að verða hluti af fjölskyldu þess,“ sagði Janus Daði í samtali við spænska miðilinn Mundo Deportivo.



