Jamina Roberts og Nathalie Hagman, goðsagnir sænska landsliðsins, hafa báðar ákveðið að hætta að leika með liðinu eftir langa og farsæla landsliðsferla að loknum komandi landsleikjaglugga, þar sem Svíþjóð mætir Úkraínu og Litáen í næsta mánuði.
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu sænsku landsliðanna. Roberts, sem er 35 ára gömul vinstri skytta, hefur leikið með landsliðinu frá árinu 2010 og er leikjahæsti leikmaður Svíþjóðar, kvenna og karla, frá upphafi með 271 leik.
Hagman er 34 ára hægri hornamaður sem hefur leikið með landsliðinu frá árinu 2009 og er á meðal leikjahæstu leikmanna Svíþjóðar með 259 landsleiki. Hún er þá markahæsti leikmaður sænska kvennalandsliðsins frá upphafi með 1001 mark.
Saman unnu þær til silfurverðlauna á EM 2010 og til bronsverðlauna á EM 2014. Ljóst er að stórt skarð er höggvið í raðir sænska landsliðsins enda tveir bestu leikmenn í sögu þess að horfa á braut í sömu andrá.



