Mikael Appelgren, markvörður sænska landsliðsins, reyndist því íslenska erfiður ljár í þúfu þegar liðin mættust í tveimur vináttulandsleikjum í síðustu viku.
Appelgren varði 18 skot í síðari leiknum í Kaplakrika, sem Svíþjóð vann 30:27, og varði níu skot er hann lék einungis síðari hálfleikinn í fyrri leiknum á Hlíðarenda, sem Svíþjóð vann með tveimur mörkum.
Vísir vekur athygli á því að Appelgren hafi birt skemmtilega mynd af sér, spænskum dómara leiksins og Viggó Kristjánssyni úr fyrri leiknum á Hlíðarenda þar sem allir þrír eru skælbrosandi þó ekki hafi beint virst tilefni til. Ljósmyndin var tekin af Hafliða Breiðfjörð, sem myndar fyrir handbolta.is.
Viggó hafði þá skotið boltanum í andlit Appelgren og dómarinn veitt Viggó tveggja mínútna brottvísun. Það athyglisverða var að allir þrír voru skælbrosandi eftir atvikið og náði Hafliði því ekki bara á mynd heldur í myndaröð:
-smellið á myndirnar til þess að sjá þær stærri.
















