- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Andri líklega ekki meira með

- Auglýsing -

Andri Erlingsson, leikstjórnandi ÍBV, missti af síðasta leik liðsins og missir einnig af þeim næsta vegna meiðsla sem hann glímir nú við. Óttast er að hann spili ekki meira með liðinu í úrslitakeppni Olísdeildarinnar.

ÍBV er strax komið með bakið upp við vegg eftir að hafa tapað fyrsta leik gegn KA í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar í Vestmannaeyjum eftir tvíframlengdan leik á miðvikudagskvöld. Því þurfa Eyjamenn sigur í öðrum leik liðanna í KA heimilinu á Akureyri á sunnudag.


Í samtali við Handkastið sagðist Andri vera með beinmar og sködduð liðbönd í ökkla. Hann hafi stefnt að því að snúa til baka í fyrsta leik úrslitakeppninnar en sé ekki enn byrjaður að æfa að nýju.

Nú sé það ljóst að Andri verði í það minnsta ekkert með Eyjamönnum í einvíginu gegn KA, þar á meðal í mögulegum oddaleik sem færi fram í Vestmannaeyjum á skírdag. Andri, sem er 18 ára, gengur til liðs IFK Kristianstad í sumar.

Erlingur Birgir Richardsson, faðir hans og þjálfari hjá ÍBV, sagði þá í samtali við mbl.is að líklegast yrði Andri ekki meira með í úrslitakeppninni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -