Aganefnd HSÍ fundar þessa dagana daglega ef þörf krefur á meðan úrslitakeppni Olísdeildar karla stendur yfir. Tveir leikmenn hlutu útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í fyrstu leikjum átta liða úrslitum úrslitakeppninnar og einn þjálfari hlaut útilokun.
Róbert Sigurðarson leikmaður ÍBV og Erlingur Birgir Richardsson þjálfari liðsins hlutu útilokun í tapi fyrir KA á miðvikudagskvöld. Á fundi aganefndar í gær var ákveðið að þeim yrði ekki gerð frekari refsing en minnt á stighækkandi áhrif útilokana.
Adam Haukur Baumruk leikmaður Hauka hlaut einnig útilokun í stórsigri á Aftureldingu á fimmtudagskvöldi. Niðurstaða fundar aganefndar HSÍ í dag var á sömu leið; ekki verður aðhafst frekar í málinu en minnt á stighækkandi áhrifum útilokana.
Róbert og Adam Haukur verða því með í öðrum leikjum átta liða úrslitanna og Erlingur Birgir á sínum stað á hliðarlínunni. Leikirnir fara fram á sunnudag og mánudagskvöld.
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026.



