Þýska félagið SG Flensburg-Handewitt er sagt vinna hörðum höndum að því að semja við bræðurna Kiko og Martim Costa auk föðurs þeirra, þjálfarans Ricardo. Feðgarnir eru allir samningsbundnir Sporting Lissabon til sumarsins 2030.
Danska vefsíðan Rygtebørs og þýska síðan RT Handball eru á einu máli um að Flensburg sé eitt af örfáum félögum sem sé áhugasamt um að semja við feðgana þrjá og leiti nú allra leiða til þess að láta það ganga upp.
Kiko er tvítug hægri skytta og Martim er 23 ára vinstri skytta. Ricardo faðir þeirra hefur þá vakið athygli fyrir frábæran árangur sem þjálfari Sporting á undanförnum árum. Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson leikur með liðinu.
Allir þrír eru eftirsóttir en þá sérstaklega sá yngsti, Kiko, sem hefur meðal annars verið orðaður við FC Barcelona.


