- Auglýsing -
- Henrik Kronborg hefur látið af starfi aðstoðarþjálfara danska karlalandsliðsins í handknattleik eftir nærri hálfan annan áratug. Hann kvaddi í vikunni að eigin ósk og þakkaði í tilkynningu um leið Ulrik Wilbek, Guðmundi Þórði Guðmundssyni og Nikolaj Jacobsen fyrir samstarfið. Kronborg starfaði náið með þeim öllum.
- Kronborg hefur í hyggju að einbeita sér að starfi sínu hjá danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold hvar hann hefur verið aðstoðarþjálfari undanfarin ár.
- Franski landsliðsmaðurinn Thibaud Briet er þráfaldlega orðaður við þýska liðið Flensburg um þessar mundir. Hann er sagður vera undir smásjá liðsins sem eftirmaður danska landsliðsmannsins Simon Pytlick. Daninn hefur ekki getað á heilum sér tekið undanfarnar vikur, svo mjög þráir hann að komast frá Flensburg í dönsku nýlenduna á Füchse Berlin. Hafa fregnir af vonum og þráum Pytlick verið afar áberandi í dönsku og þýsku fjölmiðlum síðustu vikur.
- Briet er leikmaður Nantes og hefur gert það gott. Hann er sagður falla vel að leikstíl Flensborgarliðsins sem stendur. Óvíst er hins vegar um framtíðina vegna þess að þjálfaraskipti þykja líklegri en ekki hjá Flensburg í næstu framtíð.
- Áfram þykir Daninn Stefan Madsen vera valtur í sessi í þjálfarastól franska meistaraliðsins PSG. Árangur liðsins í Meistaradeildinni er óviðunandi að mati stjórnenda PSG. Sem fyrr er nafn Spánverjans Roberto Parrondo oft nefnt í tengslum við þjálfarastarfið hjá PSG. Böggull fylgir skammrifi í þeim efnum. Hann er sá að Parrondo er samningsbundinn MT Melsungen í Þýskalandi. Sjálfur segist hann ekki hafa annað í huga en að starfa áfram hjá Melsungen.
- Auglýsing -


