- Auglýsing -
- Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar í Benfica komust í undanúrslit portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik í gærkvöld með naumum sigri á Póvoa AC Bodegão, 35:34, á heimavelli.
- Benfica mætir Águas Santas Milaneza í undanúrslitum sem leikin verða heima og að heima 15. og 18. apríl. Í hinni viðureign undanúrslita mætast Marítimo Madeira Andebol og Sporting sem Orri Freyr Þorkelsson leikur með. Sporting varð bikarmeistari á síðasta ári.
- KÍF frá Kollafirði, sem Viktor Lekve þjálfari, er úr leik í úrslitakeppni færeysku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. KÍF tapaði fyrir StÍF, 36:28, í Høllinni á Skála í gær. StÍF mætir heldur Kyndli í undanúrslitum. Vinna þarf tvær viðureignir til þess að ná inn í úrslitarimmuna um meistaratitilinn. VÍF frá Vestmanna og H71 eigast við í hinni viðureign undanúrslita. Fyrstu leikir fara fram á mánudaginn.
- Elmar Erlingsson skoraði fimm mörk fyrir Nordhorn-Lingen í fimm marka tapi fyrir VfL Lübeck-Schwartau, 29:24, í 2. deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Nordhorn er í sjötta sæti með 32 stig þegar átta umferðir eru eftir.
- Viktor Petersen Norberg skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar þegar HC Elbflorenz vann Eulen Ludwigshafen, 32:27, á heimavelli í 26. umferð 2. deildar þýska handknattleiksins í gær. Elbflorenz situr í þriðja sæti með 38 stig eftir 26 leiki. Balingen er í öðru sæti með 40 stig og Bietigheim er efst með 41 stig. Tvö efstu liðin eiga leiki inni á Elbflorenz.
- Auglýsing -



