- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Monsi, Ólafur, Tumi, Tryggvi, Hannes

- Auglýsing -
  • Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann HC Butel Skopje, 37:21, í úrslitakeppni liðanna í efri hluta í úrvalsdeildinni í Norður Makedóníu í gær. RK Alkaloid er í þriðja sæti af sex liðum.
  • Ólafur Brim Stefánsson skoraði þrjú mörk þegar lið hans Junior Fasano tapaði með sjö marka mun í heimsókn til Brixen í gær, 33:26. Junior Fasano féll niður í fimmta sæti deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir. Fjögur efstu lið deildarinnar taka sæti í úrslitakeppninni í vor. Tapið var óvænt vegna þess að Brixen situr í 12. sæti deildarinnar af 14 liðum.
  • Alpla HC Hard komst í undanúrslit austurrísku bikarkeppninnar í handknattleik karla í gær. Liðið vann roomz JAGS Vöslau, 23:22, í Vöslau í gær. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði þrjú mörk, þar af eitt úr vítakasti, fyrir Alpla Hard. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir liðið. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -