- Auglýsing -
Einn leikur er á dagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í kvöld. KA og Valur mætast í öðrum leik liðanna í undanúrslitum í KA heimilinu á Akureyri. Valur er 1:0 yfir í einvíginu eftir stórsigur í fyrsta leik liðanna í N1-höllinni á Hlíðarenda á mánudagskvöld.
Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu. Ljóst er að KA þarf að bíta í skjaldarrendur eftir 18 marka tap, 39:21, í fyrsta leik.
Valur er deildarmeistari og KA hafnaði í fimmta sæti Olísdeildarinnar. Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu þar sem FH er 1:0 yfir.
Leikur kvöldsins:
Olísdeild karla, undanúrslit:
KA heimilið: KA – Valur kl. 18
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026
- Auglýsing -



